24.10.2011
Bréf vegna hól-ráðstefnu AGS 27.10.2011
Eftirfarandi bréf er ritað af hópi fólks sem hefur sett spurningamerki við efnahagslegan bata Íslands eftir hrunið og hvernig hann er settur fram af opinberum aðilum og AGS. Það var sent á eftirfarandi aðila á ensku:Joseph Stiglits, Willem Buiter, Poul Thomsen, Julie Kozack, Paul Krugman, Simon Johnson, Nemat Shafik og Martin Wolf en þetta eru erlendur sérfræðingarnir sem munu taka þátt í ráðstefnunni sem haldinn verður í Hörpunni n.k. fimmtudag undir yfirskriftinni: Iceland´s RecoveryLessons and Challenges.
Reykjavík 23. október 2011
Kæri herra/frú
Tilefni þessara skrifa er það að þú ert meðal þeirra sem munu taka til máls á ráðstefnunni Iceland´s Recovery-Lessons and Challenges, sem haldin verður í Reykjavík 27. október næst komandi. Við undirrituð höfum áhyggjur af því að þú hafir aðeins fengið valdar upplýsingar um efnahagsástandið á Íslandi frá hérlendum stjórnvöldum. Við viljum því benda þér á mikilvægar viðbótarupplýsingar varðandi fjármál ríkis og sveitarfélaga, fjármálakerfið og stöðu almennings í landinu.
Almennt
Ljóst er að staðan í íslensku efnahagslífi er nokkuð önnur í dag en upphaflegar áætlanir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) gerðu ráð fyrir þegar þeir komu hér að málum í lok árs 2008. Þannig voru erlendar skuldir þjóðarbúsins nærri tvöfalt meiri í árslok 2010 en upphaflega var áætlað; skuldir hins opinbera eru meiri, atvinnuleysi er meira, verðbólga á árinu 2010 var meiri og svo virðist sem samdrátturinn í efnahagslífinu ætli að verða dýpri og vara lengur.
Ríkisfjármálin
Fyrir hrun skuldaði ríkissjóður 26% af VLF. Opinberar tölur yfir skuldir ríkisins eru 111% af VLF en heildarskuldir þjóðarbúsins eru hins vegar 280% af VLF. Hrein peningaleg eign ríkissjóðs versnaði um 140 milljarða króna milli annars ársfjórðungs 2010 og 2011. Ef marka má þessar tölur þá er hægt að leiða að því líkum að íslenska ríkið hafi frá hruni tekið að láni fjárhæð sem nemur jafnvirði landsframleiðslu í eitt ár og þá eru lánin frá AGS ekki einu sinni talin með. Vaxtakostnaður ríkissjóðs af núverandi skuldabyrði er hátt í 20% af tekjum.
Sveitarfélög
Skuldir sveitarfélaganna og skuldbindingar voru 586 milljarðar um seinustu áramót. Ef skuldir Orkuveitu Reykjavíkur, sem eru vel á 300 milljarða, og 47 milljarða lífeyrisskuldbindingar sveitarfélaganna eru frátaldar standa samanlagðar skuldir sveitarfélaganna í 310 milljörðum kr. sem er 20% af VLF og 154% af tekjum þeirra.
Fjármálakerfið
Kostnaður íslenska ríkisins við endurreisn bankakerfisins í kjölfar hrunsins haustið 2008 var 64% af VLF sem er heimsmet. Nýju bankarnir fengu lánasöfn gömlu bankanna á 45-65% af raunvirði þeirra. Þessi niðurfelling á milli gömlu og nýju bankanna hefur þó ekki skilað sér til almennings þar sem lánin eru rukkuð inn á nafnvirði þeirra. Afleiðingarnar eru mikill hagnaður bankanna sem byggir á því að þeir eru að eignast stóran hluta af öllum eignum íslenskra fyrirtækja og heimila.
Almenningur
Nú er svo komið að 20% heimila í landinu geta ekki borgað af lánum sínum og 40% eru í miklum erfiðleikum. Í raun eru það bara 10% sem geta greitt af húsnæðislánum með eðlilegum hætti.
Ráðstöfunartekjur heimilanna hafa lækkað um 27,4% síðastliðin þrjú ár á meðan verðlag hefur hækkað um 40%. Af þessum ástæðum hefur neysla þjóðarinnar dregist saman. Á sama tíma hefur þörfin fyrir mataraðstoð margfaldast en engar opinberar tölur eru til yfir fjöldann. Það eru þó staðreyndir að biðraðirnar við hjálparstofnanir hafa lengst og fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna hefur aukist um 62% frá hruni.
Fram hefur komið í tölum ríkisskattstjóra að skuldir íslenskra fjölskyldna hafi vaxið meira en eignir en á síðasta ári rýrnuðu eignir í fyrsta skipti meira en skuldir. Fjölskyldum sem eiga meira en þær skulda hefur fækkað um 8,1% milli ára. Þeim sem voru með neikvæðan eignaskattstofn fjölgaði hins vegar um 12,1%.
Samkvæmt síðustu tölum Vinnumálastofnunar er atvinnuleysið 6,7%. Sú tala er hins vegar umtalsvert hærri þar sem markvisst er unnið að því að koma atvinnulausum í nám og margir hafa yfirgefið landið í leit að atvinnu og betri lífskjörum. Í þessu sambandi skiptir líka máli að hópur fólks sem er atvinnulaus en á ekki rétt á atvinnuleysisbótum skráir sig ekki atvinnulausa. Hvatinn til að skrá sig er ekki til staðar þar sem fólk fær engar bætur hvort sem er. Að lokum er rétt að benda á að samkvæmt tölum sem hafa verið í opinberri umræðu má ráða að störfum á Íslandi hafi fækkað um 22.500 sem er u.þ.b. 8,2% af skráðu vinnuafli árið 2010.
Niðurstaðan
Meginástæða hrunsins var ofvaxið bankakerfi. Það orkar því mjög undarlega á almenning að horfa upp á þá ofuráherslu sem stjórnvöld leggja á endurreisn þessa sama kerfis í stað þess að byggja upp raunhagvöxt samfélagsins. Byrðum fjármálakreppunnar hefur fyrst og fremst verið dreift á skuldsett heimili. Ríkisstjórnin hefur markvisst unnið gegn almennri leiðréttingu lána og innleitt sértæk skuldaúrræði sem gefa bönkunum sjálfdæmi varðandi það hverjir fá leiðréttingu og hversu mikla. Flest ef ekki öll úrræði við skuldavanda heimila og smærri fyrirtækja hafa miðast við að viðhalda greiðsluvilja.
Þessi afstaða ríkisstjórnarinnar og vinnubrögð bankanna hafa skapað aukna misskiptingu. Landsmenn horfa upp á að það er verið að afskrifa skuldir þeirra sem ullu hruninu. Þessir halda líka fyrirtækjum sínum og arði af ólöglegum fjármálagjörningum á sama tíma og almenningur er látinn sitja uppi með forsendubrestinn. Því er svo komið að óréttlætið ógnar félagslegum stöðugleika í landinu. Kjörnir fulltrúar fara eftir kröfum fjármálaaflanna á kostnað hagsmuna almennings.
Íslenska bankakerfið hefur sett skuldir sínar yfir á almenning eins og gert hefur verið í Grikklandi, Írlandi, Portúgal og víðar. Ísland sker sig því ekkert úr hvað það varðar að lýðræðið hefur orðið fórnarlamb bankaveldisins.
Virðingarfyllst,
Andrea Jóhanna Ólafsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna
Ásta Hafberg, viðskiptafræðingur
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, fyrrverandi garðyrkjustjóri
Elínborg K. Kristjánsdóttir, fyrrverandi blaðamaður
Elías Pétursson, framkvæmdastjóri/háskólastúdent
Eyjólfur Kolbeinn Eyjólfsson, hugbúnaðarsérfræðingur
Björg Sigurðardóttir, fyrrverandi bankastarfsmaður
Björk Sigurgeirsdóttir, ráðgjafi
Guðbjörn Jónsson, ráðgjafi kominn á eftirlaun
Guðmundur Ásgeirsson, kerfisfræðingur
Guðrún Skúladóttir, sjúkraliði
Gunnar Skúli Ármannsson, læknir
Helga Garðarsdóttir, ferðamálafræðingur
Helga Þórðardóttir, kennari
Indriði Helgason, rafvirki
Jakobína I. Ólafsdóttir, stjórnsýslufræðingur
Rakel Sigurgeirsdóttir, íslenskukennari
Sigurjón Þórðarson, líffræðingur
Sigurlaug Ragnarsdóttir, listfræðingur
Vilhjálmur Bjarnason, ekki fjárfestir
Þórarinn Einarsson, aktívisti
Þórður Á. Magnússon, framkvæmdarstjóri
Afrit sent á erlenda og innlenda fjölmiðla svo og ráðherrana þrjá sem eru í gestgjafahlutverkinu á ráðstefnunni: Iceland´s Recovery-Lessons and Challenges sem haldinn verður í Hörpunni n.k. fimmtudag eða þ. 27. október
Athugasemdir
Væri ekki ráð að fólk taki sér frí frá 13:00 til 16:00 fimtudaginn 27.-10. 2011 allavega þeir sem hafa vinnu enn þá, og sameinist við Hörpuna, þessi Norræna velferðarstjórn virðist algjörlega úr takti við það sem er að gerast í þjóðfélaginu, og ekki gera sér nokkra grein fyrir því hvernig almennigur hefur það fjárhagslega, eftir Hrun.
Jón Sig. (IP-tala skráð) 24.10.2011 kl. 20:34
Jú það væri ráð að gera það. Það er á planinu að vera þarna fyrir utan með skilti og fleira.
Endilega láttu sjá þig.
Ásta Hafberg S., 24.10.2011 kl. 21:21
Góð hugmynd! Það er búið að setja upp viðburð á Fésbókinni. Sjá hér og er fólk hvatt til að hafa með sér andmælaskilti á ensku eða öðrum erlendum tungumálum. Þar við sendum þetta bréf líka á erlenda fjölmiðla erum við að láta okkur dreyma um að andmæli almennings veki einhvern áhuga þeirra. Annars er grasrótin líka að leita að einstaklingum sem eiga tökuvélar og eru tilbúnir að koma og taka upp viðtöl. Tveir tæknimenn eru búnir að bjóða sig fram til að klippa árangurinn saman í hæfilega löng myndskeið fyrir You Tube. Við hjálpumst svo að til að dreifa upptökunum út um allt.
Rakel Sigurgeirsdóttir, 24.10.2011 kl. 21:47
http://www.facebook.com/event.php?eid=203180096421161 Þú meinar sjá hér. ; )
Ásta Hafberg S., 24.10.2011 kl. 21:52
Flott hjá ykkur mikið er ég ánægð með ykkur. Vona að sem flestir láti sjá sig.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.10.2011 kl. 22:09
Fyrirspurn fyrir Nóbelshafan Krugman sem verður á ráðstefnunni:
Þegar Jóhanna og Steingrímur hækka álögur á áfengi, tóbak og bezín,þá hækkar höfuðstóll verðtryggðrar innistæðu í banka, hjá fjármagseigenda.
En að sama skapi hækka verðtryggar skuldir heimilanna.
Nú er spurt hvaða verðmæti hafa orðið til?
Gaman væri að fá svar við þessu hjá Krugman.
Jón Sig. (IP-tala skráð) 24.10.2011 kl. 22:48
Já mætum og við skulum sko aldeilis láta heyra í okkur! Við gætum yfirgnæft liðið fyrir innan. Og við gætum líka framkvæmt atriði sem koma okkur í heimspressuna og það svo augljóst verði og frekar en þau þarna inni!
Guðni Karl Harðarson, 25.10.2011 kl. 00:43
Já það væri gott mál Guðni.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.10.2011 kl. 01:00
Guðni, ég held að þér hafi bara orðið að ósk þinni Sjá hér: http://www.marxist.com/outrage-against-imf-conference-in-iceland.htm
Rakel Sigurgeirsdóttir, 3.11.2011 kl. 03:27
Frábært Rakel.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.11.2011 kl. 11:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.