Össur og stóriðjan

Það er alveg merkilegt hvað þessi stóiðjuhugsun virðist ætla að fá að grassera. Nú stendur háttvirtur iðnaðarráðherra enn einu sinni og leggur fram frumvarp varðandi álversframkvæmdir, með það í huga að gefa skattaafslætti og niðurgreiðslur svo þetta nái nú örugglega fram að ganga.

ER EKKI ALLT Í LAGI ÞARNA Á EFRI HÆÐINNI?

Hvers vegna fókuserar hann ekki á fyrirtæki sem eru nú þegar til staðar hér innanlands og kemur fram með þetta þeim til handa? Við eigum nóg af fyrirtækjum sem gætu gert miklu meira en þau gera nú þegar ef fjárhagsumhverfi, skattaafslættir og aðrað ívilanir kæmu þeim til góða. Það er líka kreppa erlendis og ekkert víst að erlendir fjárfestar muni koma hér í tonnatali með næstu vél til að eyða peningunum hérna í fyrirtækjarekstur, eins og virðist vera von iðnaðarráðherra miðað við þær hugmyndir sem hann hefur viðrað. Þetta lyktar svolítið af " Nú búum við til fullt af störfum á no time og þá tekur kannski enginn eftir því að það er kreppa" Þetta er enn ein græða hratt hugmyndin án þess að íhuga hvort til séu aðrar leiðir. Hvað er að því sem við eigum nú þegar í þessu landi? Er það bara ekki nógu gott ?

Auðvitað hefur hann rætt sprotana og stuðning við þá en við getum bara gert svo miklu meira en það. Við ættum að nota þessar ívilanir fyrir fyrirtækin okkar og styrkja  þau svo þau geti haldið uppi iðnaði og framleiðslu hér innanlands og auka útflutningsmöguleika þeirra.

Góðir hlutir gerast hægt og núna er tíminn þar sem við þurfum að fara í þá grunnvinnu sem gera hefði átt um leið og kvótakerfið var sett á á sínum tíma, en það er fyrirtækja og atvinnuuppbygging í landinu sem heild. Við getum ekki endalaust reynt að flýta okur í gegnum allt án þess að hugsa lengra en til dagsins á morgunn.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband