16.3.2009
Nýtt Ísland er einhver von um það
Eftir prófkjörin um helgina virðist nokkuð víst að íslenska þjóðin muni kjósa yfir sig sömu súpuna og var hér viðvöld fyrir og í hruni. Ný andlit innan flokkana eru um það bil ekki til og þau andlit sem geta kallast ný eru sum óhjákvæmilega tengd hruninu á einn eða annan hátt.
Ég horfi yfir þetta með hræðslusting í hjartanu. Það er svo margt sem við verðum að gera núna fyrir framtíðina að við getum ekki leyft okkur sem þjóð að gera þau mistök að kalla yfir okkur sama fólkið með sömu úreltu viðhorfin enn einu sinni. Þetta skuldum við börnum okkar og barnabörnum. Við sem þjóð berum ábyrgð gagnvart þeim og ber skylda til að búa svo í haginn að þau geti átt sér líf í þessu landi sem við getum horft til með stolti.
Á þessu sviði höfum við val. Við getum valið að fara aftur þangað sem við vorum með sama fólkið við stjórnvölinn, það er jú öruggt, við vitum hvað við höfum og fáum ef við gerum það. Við þurfum ekki að fara að takast á við ný viðhorf og lausnir með þessi andlit við stjórnvölinn og munum geta siglt þessu landi að feigðarósi með falska öryggiskennd af því að við þekkjum það sem við höfum.
Eða við getum verið hugrökk og valið eitthvað annað, valið minni flokka eða nýja flokka inn á þing, við getum skoðað hvaða framtíðarlausnir þessi aðilar hafa og valið eftir því. Séð hvort eitthvað af því nýja fólki sem kemur inn þar hafi eitthvað að segja af viti. það þýðir að við verðum að vera huguð í hjarta og velja óöryggi hins nýja og óþekkta.
Hver segir að ríkistjórn tveggja stórra flokka sé eitthvað betri en stjórn sett saman úr fleiri minni flokkum?
Er það eitthvað svona vísindalega sannað að stjórn sem er samansett á þann hátt stjórni eitthvað betur? Því miður hef ég nú bara ekki tekið eftir því hérlendis að svo hafi verið. Er málið ekki bara hverskonar viðhorf þeir sem sitja við stjórn hafa til starfsins?
Ef fólk er ekki samvinnuhugsun á annað borð þá skiptir engu hvort við stjórnvölinn séu 2 stórir flokkar eða 20 minni. Þá skiptir heldur engu hvort fólk er nýtt eða gamalt í þessum geira.
Númer eitt í dag er að mínu mati að við gerum okkur fulla grein fyrir að til þess að við komumst heil til hafnar munum við VERÐA að vinna saman. Við munum VERÐA að setja lausnir á borðið sem hægt er að framkvæma og eru raunhæfar. við munum VERÐA að leggja á okkur það óþekkta og óörugga til þess að ná árangri.
Athugasemdir
Sammála þér . Kveðja frá Eyjum .
Georg Eiður Arnarson, 16.3.2009 kl. 23:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.