Óhefðbundið ástand = tækifæri

Eftir hrun bankana í október síðastliðnum höfum við sem búum hér í þessu landi þurft að taka margt til endurskoðunar. Spurningar sem hafa vaknað hjá mér persónulega eru til dæmis:

Hvers vegna voru gildin sem okkur voru kennd s.s heiðarleiki, réttlæti og styrkur ekki í

hávegum höfð?

Hvar töpuðum við sjálfsmynd okkar sem þjóð og fórum að eltast við hluti sem gera líf okkar ekki betra?

Hversvegna hefur ekki verið fyrirtækja og atvinuuppbygging í landinu svo um munar síðustu 20 árin?

Hversvegna höfum við ekki nýtt betur okkar eigið hugmynda og hugvitsfólk í þeirri uppbyggingu?

Hvað fór úrskeiðis?

Þessar spurningar og margar fleiri hafa flögrað um í höfðinu á mér eftir því sem tíminn líður og staðreyndin um það að landið sé komið á vonarvöl verður tærari.

 Núna er tímapunkturinn þar sem við verðum að segja: “nú eða aldrei” annað hvort notum við þetta hrun til jákvæðrar framtíðaruppbyggingar fyrir landið í heild eða hjólum í sama farinu um ókomin ár og endum neðar en við erum nú þegar.

Við eigum svo margt hér í þessu landi sem hægt er að virkja og þá á ég ekki bara við vatn.

Við verðum að horfa fram á veginn og nýta alla þá möguleika sem til staðar eru.

Við eigum mjög vel menntað fólk og við eigum hugmyndaríkt og úrræðagott fólk, hvers vegna virkjum við það ekki?

 Á Íslandi eru nú þegar fyrirtæki í hinum ýmsu geirum sem með smá aðhaldi og stuðningi af hálfu stjórnvalda gætu gert mun meira en þau gera í dag.  Við getum byggt miklu meira upp hvað varðar ferðaþjónustu, matvælaiðnað,fiskiðnað, húsgögn, fatnað, tækni, hugvit,menningu, náttúrulyf og krem.

Við þurfum núna að fara í þá grunnvinnu sem hefði átt að vera búið að fara í fyrir löngu síðan til uppbyggingar heilsusamlegrar flóru fyrirtækja í landinu.

Við eigum nú þegar stuðningsbatterí sem er hægt að draga markvisst inn í þá vinnu, en það eru allir sjóðirnir okkar og atvinnuþróunarfélög víðsvegar um landið. Einnig eigum við útflutningsráð sem væri hægt að nýta betur í kynningastarfi á íslenskum fyrirtækjum og vörum erlendis. Eins og staðan er í dag þurfum við að virkja mannvit okkar og auð og nýta markvisst okkur til framdráttar og uppbyggingar.

Við þurfum að gera það áhugavert fyrir íslensk fyrirtæki að framleiða sína vöru innanlands til útflutnings, þannig getum við hægt og rólega byggt upp peningaflæði inn í landið sem við þurfum svo mjög á að halda.

Við þurfumað sýna það og sanna að í okkur býr dugur til að takast á við framtíðina á ábyrgan og raunhæfan hátt.

Til þess verðum við að geta gert skammtíma og langtímaáætlanir sem starfa hlið við hlið í þjóðfélaginu. Í dag er ekki staðan þar sem við getum hoppað yfir girðinguna þar sem hún er lægst og vonað að þetta reddist. Í dag verðum við að sýna kjark til að hugsa óhefðbundið þegar kemur að lausnum, því það er ekkert hefðbundið við þá stöðu sem við erum í sem land og þjóð. Það sorglega er að þeir einu sem virðast ekki geta hugsað óhefðbundið eða séð möguleikana sem við höfum er fólkið sem á að stýra okkur út úr ástandinu á farsælan hátt.

  

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband