Stöðugleiki í hugmyndafræðilegu gjaldþroti

Stöðugleikasáttmáli þessa lands er settur saman af fólki sem sat við stjórnvölinn þegar allt hrundi hér.

Þetta fólk er að reyna að leysa öll okkar vandamál með sömu aðferðum og komu okkur í vandamálin. Stóriðja og mannaflsfrekar framkvæmdir er það eina sem þeim dettur í hug, ja ef við verðum heppin verður fjárfest í einhverjum "lífvænlegum" fyrirtækjum og þá erum við líklega að ganga út frá fyrirtækjum sem skila miklum arði strax til sinna fjárfesta og ekki verður horft á langtíma uppbyggingu eða gjaldeyrisþörf landsins.

Sem sagt algert hugvitslegt gjaldþrot.

Ef Gylfi, eins og sagt er á þýsku " Hatte Eier in der Hose" , hefði hann unnið vinnuna sína fyrir það fólk sem hann á að vera að vinna fyrir , hinn venjulega starfandi Íslending. Hann hefur ekki gert það og er eins og slefandi hundur á eftir stjórninni, vonandi að þetta sé nú allt svo flott og fínt eins og lofað var. Vonandi að ESB verði hin mikla lausn, þó svo að það hafi alveg sýnt sig að svo sé ekki.

Málið er að við þurfum að vinna vinnuna okkar hérna heima til að öðlast traust á erlendum vettvangi, að halda það að við getum sótt um í ESB, skrifað undir Icesave eða farið undir kúgunarhamar AGS geri það að verkum að erlend samfélög fái traust á okkur er fásinna.

Vinnan þarf að gerast hér, við þurfum að hreinsa út spillta stjórnmála og embættismenn, bankafólk, henda útrásarvíkingum í fangelsi, fara í almennilega almenna þjóðfélagsuppbyggingu og þá mun alþjóðasamfélagið kannski fá traust á okkur aftur.

Það gerist ekki með því að hlaupa eitthvað annað og vona að þetta reddist.

En þegar öll er á botnin hvolft er ég engan veginn hissa á að stöðugleikasáttmálin sé í uppnámi, það er ekki hægt að laga það sem fór úrskeiðis með sömu aðferðum og komu öllu í ólag.

Svo einfalt er það mál.


mbl.is Sáttmálinn í uppnámi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Það er mikið rétt! Reyndar ef stöðugleikasáttmálinn er skoðaður nákvæmlega kemur í ljós að þar er ekkert innihald. Sáttmálinn er ekkert annað en villandi heiti fullur af orðum eins og „leitast skal við“, „reynt verður eftir megni/aðstæðum“ og fleirum í þessum dúr. Ætla eldgamlir verkalýðshundar að reyna að telja einhverjum trú um að þeir hafi ekki vitað hvað þeir voru að skrifa undir!? Þeir skrifuðu undir orðin tóm!! Þeir nýttu sér ekki samningavopnið sem þeir höfðu í höndunum til að semja um farsæla framtíð og heildarhagsmuni þjóðarinnar heldur héldu lífeyrissjóðunum út af fyrir sig. Þeir áttu að redda næsta fixi fyrir bræðrafélag gróðafíklanna.

Vonandi hefur verkalýðurinn það í huga n.k. fimmtudag og mætir flyktu liði fyrir framan Hilton þar sem ASÍ-þingið hefst kl. 10:00 bæði fimmtudag og föstudag. Á fimmtudeginum lýkur þinginu kl. 18:00 en 15:00 á föstudeginum.

Rakel Sigurgeirsdóttir, 20.10.2009 kl. 11:15

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Eina leiðin út úr þessu er að virkja einstaklingana á þessu landi, ekki alla jarðorkuna.

Árni Gunnarsson, 20.10.2009 kl. 22:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband