Færsluflokkur: Bloggar

Skattur á leiðréttingu ?

Það sem ég hjó sérstaklega eftir í þessari frétt var setningin. Bankarnir hver í sínu horni......

Það er ekki nema von að hér taki alir hlutir svona langan tíma þegar samvinna og samþættar aðgerðir virðast ekki vera hugtök sem neitt af þessu fólki þekkir og notar. Er ekki alveg ótrúlega sorglegt að vita til þess að þó að allt hafi hrunið og kalli á algera samvinnu innan allra sviða þjóðfélagsins að þá virðist það virka að mjög litlum hluta og í flestum tilvikum alls ekki.

Annað er svo það að ekki finnst mér forsvaranlegt að ætla að láta fólk borga skatt af LEIÐRÉTTINGUM skulda sem það tók ekki. Er það von mín að stjórnvöld sjái sér fært að taka allavega einu sinni HEILT skref í einhverju máli og keyri í gegn bráðabirgðalög sem gera það að verkum að á meðan verið sé að leiðrétta skuldir almennings eftir hrun verði ekki farið í skattheimtur á þeim leiðréttingum.


mbl.is Höfuðstóll lána verði lækkaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skófla er skófla

Þaðan sem ég kem kallar maður bara skóflu skóflu og er ekkert að búa til einhver önnur nöfn á hana.

Það er ekki verið að AFSKRIFA neitt, heldur LEIÐRÉTTA og fólk á ekkert að þurfa að láta sér líða illa yfir því.

Í því hruni sem varð hér í október hafa sérstaklega gengistryggðu lánin farið uppúr öllu valdi. Hækkanirnar eru tilbúnar tölur á pappír og enginn peningur sem hefur farið úr einni hendi í aðra. Á pappír hefur bankinn meiri eign undir höndum, sem í raun er ekki til og skuldarinn á hærri skuld sem hann tók aldrei.

Það er undarlegt að þeir sem sitja hér við stjórnvölinn hvort sem er á þingi eða í bönkunum skuli enn halda að hér sé hægt að láta eins og ekkert hafi gerst og sömu gömlu reglurnar séu enn í gildi.

Enn og aftur segi ég, Þetta er óhefðbundið ástand og lausnirnar geta ekki verið hefðbundnar.


mbl.is Vaxandi þrýstingur á að afskrifa íbúðalán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vörumerkið Ísland?

Þarna er greinilega einhver misskilningur á ferð hjá ráðherrunum okar.

Ísland sjálft með náttúruna og fólkið er ekki stórskaddað vörumerki. Allir þeir ferðamenn sem ég hef hitt í sumar, og hafa verið fleiri en fyrri sumur, staðfesta það. Þetta fólk kemur í miklum meirihluta við á vinnustað mínum og enn hef ég ekki hitt neinn sem hefur hallmælt annað hvort náttúru Íslands eða fólkinu sem býr þar. Við sem þjóð og land stöndum alveg fyllilega fyrir okkar hvað það varðar.

Það sem ráðherrarnir eru að tala um er allt annað.

Þeir eru að tala um að traust á ríkistjórninni er stórskaddað, traust á fjármálafyrirtækjum Íslands er ekkert og þar af leiðandi eru erlend fyrirtæki ekki að fjárfesta á Íslandi.

Þetta finnst mér engan veginn vera vörumerki Íslands.

Ef ráðherrum okkar er í mun að byggja upp traust þá þurfa þeir að upplýsa og kynna bæði hérlendis og erlendis hvaða markmið eru sett til endurreisnar, fara alvarlega og af festu í að koma höndum yfir fjármálasnillingana sem komu okkur í þetta og skapa skjaldborgina sem hefði fyrir löngu átt að gera eitthvað í.

Það þýðir ekki lengur að höfða til meðvirkni íslensku þjóðarinnar og reyna þannig að fría sig ábyrgð.


mbl.is Vörumerkið Ísland stórskaddað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flokka hvað?

Það er leitt að Borgarahreyfingin hafi dottið í sama farið og flestir flokkar virðast gera á Íslandi. Innanbúða togstreitu og brölt.

Þetta styrkir mig í þeirri skoðun minni að flokkakerfið er úrelt og einskins nýtt stjórnarform fyrir Ísland. Ástæðurnar fyrir því eru nokkrar:

1. Það er auðveldara að vera spilltur í stórum hóp en sem einstaklingur.

2. Engin flokkur mun nokkurn tíma geta unnið að heilindum, til þess eru of margir sem vilja komast að kjötkötlunum og enda með að stinga hvern annan í bakið á leiðinni.

3. Flokka pólitík fer að snúast meira um það að flokkurinn hafi rétt fyrir sér heldur en að verið sé að vinna saman inn á þingi fyrir þjóðina.

4. Með kjördæmaskipan eins og hún er í dag er auðvelt að komast á þing fyrir þá sem geta lofað sem  mestum úrbótum, sérstaklega út á landi ( svo er alltaf spurning hvað er staðið við).

5. Þegar þarf að vinna hratt getur flokkur stoppað allt með málþófi og rugli ef svo ber undir.

6. Þingið er of stór miðað við stærð okkar, 33 þingmenn með ráðherrum er alveg nóg.


mbl.is Þingmenn okkar hafa brugðist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vantraust

Ég treysti ekki stjórninni

Ég hætti að treysta Steingrími fyrir kosningar

Ég er því miður hætt að treysta Jóhönnu

Ég treysti varla þingheimi í heild

Ég treysti ekki flokkum

Ég treysti ekki skilanefndum

Ég treysti ekki Bankastjórum

Ég treysti ekki meðlimum stjórna félaga og fyrirtækja

Ég treysti ekki ASÍ

Ég treysti ekki SA

Ég treysti ekki orði af því sem kemur frá AGS

Ég treysti ekki fjölmiðlum

Ég treysti fáum sérfræðingum hérlendis

Ég treysti ekki FME og ekki Seðlabankanum

Ég treysti því ekki að þetta fólk sé að reyna að vinna fyrir þjóðina og landið. Ég treysti því ekki að þau segi satt. Ég treysti því ekki þau vinni af heilindum.

Ég vona að ég sé sú eina sem líður svona og ef ekki þá skil ég ekki hvernig við getum látið allt yfir okkur ganga sem hefur verið að koma upp á borðið síðan í október 2008.

 


Er rússalán verra en önnur lán?

Ég ætla að taka það skýrt fram að ég treysti engu lengur sem fram kemur um hver sagði hvað hvenær eða hvernig og með hverjum en..........

Gefum okkur að þetta sé rétt og íslenska Ríkisstjórnin hefi ekki viljað Rússa lánið, þá þurfum við að vita AF HVERJU?

 Lán frá Rússum sem sjálfir hafa lent í klónum á AGS getur ekki hafa verið verra en AGS.

Lán frá Rússum  hefði kannski gert það að verkum að okkur hefðu boðist önnur lán frá öðrum þjóðum og heðfum þannig sloppið alveg við AGS.

Ég efast um að Rússar hefðu farið að skipta sér af hvernig við færum í uppbyggingu efnahags og þjóðfélags í sama mæli og AGS.

Ég efast um að Rússar hefðu sett in skilmála um að ekki er hægt að fara í almennar aðlaganir skulda einstaklinga í landinu.

Ég efast um að þeir hefðu komið að áætlun um massívan niðurskurð í velferðarkerfinu.

Lán frá þeim hefði líklega gefið okkur sem þjóð meira frelsi þegar kemur að okkar eigin uppbyggingu á okkar eigin forsendum.

Hver var akkurinn í að fá lán hjá AGS? Stofnun sem aldrei hefur getað sýnt fram á að áætlanir þeirra virki yfirhöfuð fyrir neina þjóð.

Sumir segja að það sé aðildin að ESB sem liggi að baki. Ef svo er þá spyr ég, er aðgöngumiðinn að þeim klúbb ekki orðin ansi dýr?

Er eitthvað markmið hjá okkur sem þjóð að tilheyra hóp sem greinilega "þvingar" fram lausnir sér í hag og tekur ekki tillit til aðstæðna hverju sinni?

Ef við tökum svo Icesave inn í þetta þá efast ég stórlega um að Rússar hefðu sett lausn þess máls sem skilyrði fyrir lánveitingu. Enda hefur spurningin aldrei verið sú hvort eigi að borga Icesave, heldur hvort að sá samningur sem nú liggur á borðinu sé viðráðanlegur fyrir þjóðina.

Við skulum samt ekki vera svo naív að halda að Rússar hefðu lánað okkur af því við erum svo lítil og sæt, auðvitað hefðu þeir viljað eitthvað fyrir sinn snúð, en einhversstaðar læðist að mér sá grunur að það hefði verið viðráðanlegra en AGS.


mbl.is „Íslendingar vildu ekki lán frá Rússum"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er jákvætt

Mér finnst þetta jákvæðustu fréttir sem ég hef lesið í marga mánuði, ef undan er skilið þegar tilkynnt var að Eva Joly tæki við starfi sem rágjafi vegna hrunsins.

Það er vonandi að með því að fá inn óháða, faglega aðila sem eiga engra eigin hagsmuna að gæta hérlendis, að einhver skriður komist á þessi mál. Mér fannst líka athyglisvert að SFO hefur samband við Evu Joly og ekki hérlenda fagaðila.

Það vona ég að stjórnvöld hafi nógu mikinn manndóm til að taka þessari aðstoð opnum örmum og nýti sér fagkunnáttu annarra í þessum málum. Þau skulda okkur þjóðinni að ötullega sé farið í alla svikastarfsemina sem hér hefur verið við lýði.

Það sem mér fannst verst við að lesa þetta var að það rann upp fyrir mér að ég treysti engum sem nú sitja við stjórnvölinn hérlendis til að fara í þetta. Í raun treysti ég þeim ekki fyrir neinu sem viðkemur heill lands og þjóðar.


mbl.is Bretar bjóða aðstoð við rannsókn á bankahruni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Berseksgangur er málið

Þegar ég les þetta langar mig að öskra, gráta móðursýkislega og líklega ganga berserksgang á alvöru gamaldags víkingamáta. Síðastnefnda er kannski besta lausnin í stöðunni.

Hvernig stendur á því að þetta er ekki hægt hér?

Eru allir óhæfir, spilltir og með brenglað siðferði sem eiga að vera að ganga frá þessum málum?

Eru þessi mál hér á Íslandi svo yfirgengilega viðkvæm, öðruvísi eða flókin að ekki er hægt að komast til botns í þeim?

Nóg er nóg, legg til að þjóðin stofni sitt eigið þing á Þingvöllum aftur og keyrum inn þá hluti sem eru mikilvægir. Þeir sem sitja inn í Alþingishúsinu á dag geta þá haldið áfram að kvabba og tuða um flokka og völd og leyft okkur þjóðinni að redda bara málunum.

Eitt er víst ekki er það að gerast í dag.


mbl.is Stjórnendur bankans ákærðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fellur kannski mjúklega til jarðar með fyrirvörum?

Í breska fjármálaráðuneytinu  virðist sú skoðun vera til staðar að búið sé að gera endanlegan samning um þetta mál.

Talsmaður breska fjármálaráðuneytisins virðist meira að segja ganga út frá að ríkisstjórnin ætlaði að keyra samninginn í gegnum þingið í núverandi mynd. Sem reyndar var reynt í byrjun af hálfu ríkisstjórnarinnar.

Steingrímur fer svo hamförum í Morgunblaðinu í dag um allt það hræðilega sem muni gerast ef þetta verður ekki samþykkt.

Fyrirvarar eru kannski mögulegir, kannski verður tekið mark á þeim eða kannski ekki, kannski þýða þeir að samningurinn sé felldur "mjúklega".  Kannski verðu alþjóða samfélagið brjálað ef þetta verður ekki samþykkt, kannski verða sett á okkur höft, kannski fáum við engin lán, kannski missum við traust í samfélagi þjóðanna.

Þetta er of mikið kannski fyrir mig.

Ég vil vita beint út hvað er á bak við þennan samning, ég tel okkur sem þjóð eiga heimtingu á að vita 100% hvort hægt sé að setja fyrirvara á samninginn og hvort mark verði tekið á þeim. Við eigum heimtingu á að vita 100% hvað gerist ef hann er felldur. Hefur verið haft í hótunum um höft, viðskiptabönn og ýmislegt annað í þeim dúr? Ef svo er þá á það að koma upp á borðið.

Bæði Jóhanna og Steingrímur verða að gera sér grein fyrir að nú er runninn upp tími hreinskilni og sannleika. Nú er tíminn þar sem allt verður að vera upp á borðinu, því ef það er ekki svo, þá er heldur enginn möguleiki á því að við sem þjóð getum staðið saman að einhverjum markmiðum.

Eitt er víst að þessi samningur í núverandi mynd er ekki til umræðu og hefði aldrei átt að komast inn á þing í þeirri mynd sem hann er. Þjóðin sem mun þurfa að sitja undir þessari skuld sem hún stofnaði ekki til á heimtingu á að allt verði reynt til þrautar í þessu máli.

Allt annað er uppgjöf.


mbl.is „Það er búið að semja!“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tónninn var í besta falli falskur...

Mér finnst þessi gagnrýni Hrannars einmitt sýna kjarnann í íslenskum stjórnmálum sem eru eftirfarandi: Flokksblindni, hroki, ófagmannleg, ómálefnaleg, barnaskapur og enginn samvinna við aðra, hvort sem eru flokkar, aðilar eða stofnanir.

Að maðurinn skuli ekki skilja að þjóðin er búin að fá nóg fyrir löngu síðan og treystir ekki neinum, ekki einu sinni hinum mikla bjargvætti Samfylkingunni sem sýndi sig að vera loftbóla þegar kom að lausnum fyrir þjóðina á þessum verstu tímum í sögu hennar. Hvernig getur hann ekki skilið að þjóðin þarf leiðtoga sem stendur upp fyrir hana og stappar í hana stálinu? Hvernig getur þessi maður verið svona ignorant á ástand fólks í landinu?

Ég skrifaði færslu rétt eftir kosningar þar sem ég áréttaði það að S og Vg yrðu að passa sig á því að þjóðin væri ekki tilbúin í sama ruglið innan stjórnmála enn einu sinni og að nú yrði að sýna það og sanna í eitt skipti fyrir öll að hægt væri að snúa við blaðinu og taka upp aðra vinnuhætti.

Þessi ríkisstjórn hefur ekki gert það og inn á þingi er sama flokkasúpan og var áður í sömu rifrildunum og áður. Hvernig er hægt að bjóða atvinnurekendum sínum upp á eins ófagleg vinnubrögð eins og þarna viðgangast? Og það á tímum eins og við erum að ganga í gegnum hér.

Ég er hneyksluð á skrifum þessa manns og tel hann hafa sýnt að hann er starfi sínu alls ekki vaxinn.


mbl.is Hrannar sendir Joly tóninn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband