Færsluflokkur: Bloggar
1.8.2009
Lögregluríkið Ísland
Nú er búið að setja lögbann á umfjöllun fjölmiðla á þessum upplýsingum. Er þetta ekki farið að verða ansi lögregluríkjalegt? Er ekki neyðarástand? Á ekki að vera að vinna að því að komast að hinu sanna í málinu? Átti ekki að koma þeim í hendur laganna varða sem misnotuðu aðstöðu sína innan bankakerfisins skammlaust?
Ég er ekki þolinmóð lengur, ég er bara reið og mér er ofboðið á sálinni. Ég grét yfir grein Evu Joly af einskærri sorg og reiði. Sorg yfir því að enginn hér á Íslandi hefur gert það sem hún er að gera og reiði yfir því sama.
Mér finnst ég vera niðurlægð af mínum eigin stjórnvöldum fyrir gagngert getuleysi þeirra í öllum málum. Mér finnst stjórnvöld mín hafa brugðist mér á allan hátt í öllum málum.
Eigum við að ræða þetta eitthvað frekar? Eru ekki pottar og pönnur málið?
![]() |
Kaupþing fékk lögbann á RÚV |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
1.8.2009
Kaldhæðni örlagana
Er ekki kaldhæðnislegt að eina manneskjan sem hefur dug og þor til að standa upp fyrir þjóðina á erlendum vettvangi er Eva Joly. Ég er glöð yfir að hún skuli tala okkar máli, en á sama tíma er ég óhemju sorgmædd yfir að engin sem stjórnvölinn á Íslandi skuli geta tekið sig saman í andlitinu og gert hið sama.
Hvar eru okkar íslensku leiðtogar? Hvar er fólkið sem á að vera að hafa hagsmuni okkar í 1. sæti?
Ó já við skulum ekki gleyma að hér er mikilvægara fyrir stjórnendur að vera í flokka skotgrafarhernaði heldur enn að vinna saman sem einn maður FYRIR land og þjóð. Stjórnvöld okkar halda ennþá að þau geti frasað sig út úr ástandinu og látið sem ekkert sé.
Ég segi enn og aftur eins og í fyrri færslu: Íslenska þjóð, er ekki nóg komið? Ætlum við að láta þetta allt yfir okkur ganga án þess að segja múkk?
Þjóð okkar afrekaði að lifa í þessu landi þegar ekki var rafmagn, þegar hús voru gerð úr torfi og sauðskinnskór voru í tísku. Ég vil ekki að við förum aftur þangað, en ég ætlast til að við sem þjóð lítum okkur nær og nýtum okkur þá styrkleika sem liggja meðal okkar í að koma okkur út úr þessu.
Við ÞURFUM að standa saman sem einn maður og berjast fyrir okkur sjálf. Við verðum að vera með það alveg á hreinu að þetta ástand "reddast" ekki. Við verðum núna að fara í meðvitaða ákvörðunartöku til framtíðar.
P.s. Hvar er Frú Vigdís Finnbogadóttir?
![]() |
Stöndum ekki undir skuldabyrði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
31.7.2009
Nóg komið?
Eigum við sem þjóð ekki að fara að vakna af Þyrnirósarsvefninum?
Stjórnvöld eru ekki að gera neitt til að koma þessum mönnum undir lás og slá, það er ekki verið að frysta eigur neins. Þau mál sem eru uppi á borðinu í dag eru of stór fyrir hvaða flokkastjórn sem er og við erum löngu komin út yfir þessi flokkur og hinn flokkurinn í þessum málum.
Skilanefndir bankana eru heldur ekki að vinna fyrir okkur, kannski það sé misskilningur af minni hálfu en ég hélt að hluti af starfi þeirra væri einmitt að tilkynna misjafna hluti til sérstaks saksóknara.
AGS er ekki hér til að hjálpa okkur hinum venjulegu borgurum í landinu.
Við eigum ekki "vini" meðal þjóðanna, hagsmunir hverrar þjóðar fyrir sig ganga framar okkar hagsmunum, skiljanlega. Alveg eins og hagsmunir okkar sem þjóðar ættu að vera númer eitt hjá okkar stjórnvöldum ALLTAF. Sem nota bene eru í vinnu hjá okkur.
Við verðum sem þjóð að sýna og sanna að við erum þess megnug að standa upp gegn þessum órétti sem hefur yfir okkur gengið.
Ég hef enga trú að að opinberir starfsmenn eða stjórnvöld muni gera það. Ég hef enga trú á að það fólk sem nú situr inni á þingi og í öðrum mikilvægum stöðum í þessu samfélagi hafi a) yfirsýn yfir málin og b) getu til að vinna að málunum í samvinnu og samstarfi á milli flokka og stofnana.
Við getum hreinlega ekki látið það fréttast að við sem venjulegt fólk í þessu landi förum í gegnum mestu hamfarir sem um getur í sögu landsins án þess að reyna að sporna við fótunum.
Er ekki nóg komið ?
Hvar eru pottarnir og pönnuranr núna? Hvar er hugsjón og kjarkur okkar sem þjóðar? Hvað viljum við?
![]() |
Segja trúnað gilda um upplýsingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.7.2009
Argentína Norðursins
Þetta er farið að minna meira og meira á framgöngu AGS í Suður Ameríku og Asíu á sínum tíma. Þið fáið ekki nema.....sem breytist svo eftir hentisemi AGS.
Ég hef ekki ennþá séð nein plögg yfir að land sem hafi notið þjónustu AGS hafi haft það gott á eftir. Aðal mottó AGS er "They have to taste the medicine " þannig að aðgerðir þeirra hafa ekkert með fólkið í landinu að gera heldur fjárfesta, einkavæðingu og prógrammið sem þeir hafa keyrt miðar að þessu.
Er ekki komin tími til að stíga á bremsuna, eitthvað sem hefði átt að gerast strax eftir hrun, og taka almennilegan status sem þjóð, fá yfirsýn yfir þessi mál og vinna okkur út úr þessu á okkar forsendum. Við höfum allt að vinna og engu að tapa.
![]() |
Afgreiðslu AGS frestað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
30.7.2009
Veit einhver hverjar forsendurnar eru?
Það er rökrétt að lönd innan ESB setji spurningamerki við ástæðurnar fyrir umsókn frá okkur. Við virðumst ekki sjálf hafa hugmynd um hverjar forsendurnar eru nema frasa Samfylkingarinnar um hugsanlegan stöðugleika, minni spillingu hmmm og réttlæti fyrir alla.
Ef fólk kynnir sér ESB almennilega mun það komast að að það er ekkert sérstaklega samband hins venjulega vinnandi manns innan þess.
Það er líka rétt eins og við höfum mörg bent á að ESB er ekki björgunarstofnun og Íslensk stjórnvöld geta ekki verið svo naiv að halda að svo sé.
Mér er nokk sama hvað Össur segir um þessa umsókn í dag, í aðdraganda kosninga var ekki hægt að skilja meirihluta Samfylkingarinnar öðruvísi en að eina leið okkar úr útrásarvíkingaógöngunum væri aðild að ESB.
Mér þætti gaman að sjá þá áætlun stjórnvalda í sambandi við efnahagsuppbyggingu landsins sem inniheldur liðinn sem gerir ekki ráð fyrir inngöngu. Er sú áætlun til, eða er þetta enn einn innihaldslausi frasinn sem kastað er í þjóðina?
Í dag stöndum við ekki bara uppi með hrun hérna innanlands á öllum sviðum heldur líka AGS, Norðurlöndin, England, Holland og ESB sem eru öll að pressa á okkur með Icesave og enginn virðist vita hvaða forsendur eru fyrir hvaða fyrirgreiðslu og láni. Er þetta lausn okkar mála? Ég get bara ekki fyrir mitt litla líf séð það.
Við þurfum sem þjóð að sameina okkur sjálf öðruvísi komumst við hvorki lönd né strönd. Við þurfum sem þjóð að horfa innávið og sjá okkar möguleika á okkar forsendum, því eitt er víst að allt þetta hjal um "vinaþjóðir" og samfélag þjóðanna sem hjálpar okkur er bara naivt rugl sem ég held að flestir séu hættir að hlusta á.
![]() |
Vilja meiri samhug Íslendinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
22.7.2009
" Vinaþjóðirnar" í "samfélagi þjóðanna"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
21.7.2009
Mikilvægasta málið
Þetta lítur svona út fyrir mér.
Þingheimur gerir sér grein fyrir hve mikilvægt þetta mál er.
Þjóðin gerir sér grein fyrir hve mikilvægt þetta mál er.
Aftur á móti mundi bara heimskur maður kasta steinum ef hann byggi í glerhúsi.
Því lengra sem líður á þetta mikilvægasta mál Íslensku þjóðarinnar kemur í ljós frá fleiri og fleiri fagaðilum að samningur þessi er meingallaður. Notast er við tölur frá 2007 til að reikna út greiðslugetu okkar. Ekki er tekið með áhrif skattahækkana á neyslu almennings o.s. fr.
Hvernig getur ríkistjórnin ætlast til að þetta verði samþykkt þegar hún hefur ekki sýnt fram á getu sína til að koma með raunhæfa útreikninga á dæminu.
Kæra ríkisstjórn við gerum okkur öll grein fyrir mikilvægi málsins og þess vegna eigum við ekki að flýta okkur.
![]() |
Erfitt en verður að leysast" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
21.7.2009
Salt í grautinn
Fyrir hvern er kreppan á undanhaldi? Okkur hinn almenna borgara eða fjármálamenn?
Það virðist sem kreppan sé meira og meira mæld út frá fjármálageiranum og ekki hinum almenna borgara. Auðvitað hangir þetta allt saman einhversstaðar, en persónulega neita ég að goodera það að það sé mikilvægara fyrir undanhald kreppu að hlutabréfavísitölur hækki heldur en hvort fólk eigi salt í grautinn.
Ég get bara ekki alveg séð hverju það muni breyta fyrir mig og mína fjölskyldu. Heima hjá mér er kreppan nýbyrjuð og miðað við að þingið muni samþykkja Icesave á þeim valta grunni sem sá samningur stendur á, er hún heldur ekkert að enda heima hjá mér.
Reyndar er svo kaldhæðnislegt frá því að segja að þegar Argentína fór í "samstarf" við AGS á sínum tíma var það undir formerkjum vinstrisinnaðrar stjórnar sem byrjaði einmitt á því að koma með 100 daga áætlun. Hringir þetta bjöllum?
![]() |
Vísbendingar um að kreppan sé nú á undanhaldi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.7.2009
ESB ekki góðgerðastofnun
Það hafa verið margar umræður hérlendis um það hvernig eigi að snúa þessari bagalegu stöðu við sem land og þjóð hefur lent í undanfarið. Fyrir kosningar drukknuðu bara því miður margar góðar hugmyndir í ESB herferð og styrkja málinu mikla.
Ég hef viljað halda því fram að þessi kreppa sem nú ríður yfir hefði komið á endanum. Ef bankakerfið hefði ekki verið orðið of stórt hefði hún verið í smærri skala.
Ástæðan fyrir því að ég vil halda þessu fram er að það hefur aldrei verið farið í sameinað uppbyggingar átak á fyrirtækjum hérlendis með innlenda framleiðslu til útflutnings. Allt hefur miðast að því að gera sem stærst og best og það gleymdist alveg að horfa á það að við erum lítið land sem eigum undir högg að sækja einmitt vegna smæðar gjaldmiðilsins.
Það VERÐUR að byggja upp innlenda atvinnustarfsemi á sem flestum sviðum með það í huga að hægt sé að framleiða innanlands til útflutnings. Með því að gera það er LÍKA hægt að stabílísera krónuna hægt og rólega.
Með því að stofna Fjárfestinga/lánasjóð atvinnulífsins sem bæði endurfjármagnar fyrirtæki og lánar þeim sem eru að stofna ný, langtímalán á hagstæðum vöxtum hefði verið hægt að fara í massífa uppbyggingu, guð veit að ef það er eitthvað sem Íslendingar eiga nóg af þá eru það hugmyndir og góðar og vel úthugsaðar viðskiptaáætlanir eru í mörgum skúffum út um allt land.
Þessi sjóður væri þá stofnaður með aðild Lífeyrissjóða og annarra hagsmunaaðila sem eiga aur.
Svo eigum við nú þegar stuðningsbatterí sem hægt er að virkja betur s.s Impru, Nýsköpunarmiðstöð, atvinnuþróunarfélög og Útflutningsráð.
Við Íslendingar þurfum að líta okkur nær, við erum búin að vera að eyða óhemju mörgum árum í að vera stærst og best á alþjóðamælikvarða og bera okkur saman við stórþjóðir.
Við erum bara um 300.000 sálir hér í þessu landi og höfum lifað hér í gegnum súrt og sætt, eitthvað sem við getum verið mjög stolt af. Þó við séum ekki stórþjóð getum við ennþá verið stærst og best á okkar eigin forsendum.
Ég ætla ennþá að halda því fram að ESB umsókn á núverandi tímapunkti er " þetta reddast" lausn Samfylkingarinnar. Þetta segi ég ekki vegna þess að ég er á móti ESB heldur vegna þess að ESB er ekki góðgerðastofnun og mun ekki geta "bjargað" okkur út úr ástandinu.
Það verðum við að gera sjálf.
![]() |
Andsnúnir inngöngu Íslands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.7.2009
Og kemur þetta á óvart?
Ég hef bent á það áður að aðild að ESB er margslungin og ekki eins einföld í meðförum og oft hefur verið stillt upp af öðrum stjórnaflokknum okkar.
Það að fylla út umsókn og senda til Brussel tekur í raun enga stund, en það er allt ferlið um leið og umsóknin kemur þangað sem getur verið erfitt.
Tyrkir hafa beðið lengi eftir að komast inn og með því að taka okkur fram fyrir þá í röðinni er ESB að senda "skilaboð" til hins múslímska heims um að þeir séu okkur ekki jafnir. Það er eitthvað sem ESB getur og mun líklega ekki gera. Þeir eru með Tyrki í bakgarðinum og munu ekki vilja hætta á einhverjar erjur við þá.
Einnig þarf jú einhliða samþykki allra aðildarlanda vegna umsóknar okkar og gæti það vel farið svo að sum munu segja nei. Bæði vegna kreppu innan ESB og vegna þess að þeim finnst ekki að við getum farið fram fyrir Tyrki í röðinni.
Einnig má nefna það að Kosovó er ekki búið að klára sitt ferli, þó að það ætti svo sem ekki að hafa neitt að segja fyrir okkur sem slíkt. Þar reyndar gæti komið upp krísa ef við förum að fara fram úr þeim í ferlinu og kæmumst í gegnum okkar viðræður og aðlögun á mun styttri tíma en þeir.
Ætli Samfylkingin hafi spáð í þessu? Eða átti bara að stóla á "vinaþjóðirnar" í Skandinavíu sem eru bara meðalstór lönd innan ESB og hafa ekki nándar nærri eins mikið vægi og Englendingar, Þjóðverjar, Frakkar og Hollendingar innan sambands, líka þó þau séu í forstöðu fyrir sambandið.
![]() |
Aðild Íslands móðgun við Tyrki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Ég er farin að hallast að því að Samfylgingin sé haldin einhverskonar naivisma þegar kemur að ESB. Einhversstaðar á fundi rétt eftir hrun hefur ESB verið stillt upp í svona réttlæti, jafnræði og guð má vita hvaða frösum fleiri, ljósi og svo var hamrað á þessu í kosningabaráttunni.
Ég hef svo komist að því eftir því sem tíminn líður að mjög fáir innan Samfylkingarinnar virðast hafa kynnt sér ESB að einhverju ráði og skjóta bara fólk niður sem bæði hefur kynnt sér málin og er að koma með raunhæfa punkta um ESB, eða gera hjákátlegt grín að fólki sem einmitt hefur vit á ESB.
Ég hef persónulega komist á þá skoðun að ef Samfylkingin ÆTLI að keyra okkur inn í ESB þá ber þeim líka SKYLDA til að fara í fararbroddi með hlutlausar og málefnalegar upplýsingar um samninga annarra þjóða, EMR II og upptöku Evrunnar. Það hafa þau ekki gert og ef þá hefur það týnst í hinu mikla upplýsingaflæði sem er í gangi þessa dagana frá ríkisstjórn til almennings.
Ég hef talað um það áður að ESB er ekki góðgerðastofnun og hagsmunir stóru ríkjanna innan sambands ganga oft fyrir. Það er líka spilling innan ESB og alveg óhemju mikill lobbíismi. ESB á við orkuvandamál að stríða og allt sem heitir hiti og rafmagn innan sambands er mjög dýr. Einnig er vatn af skornum skammti sérstaklega yfir sumartímann. Ég hef sagt og segi enn að við eigum að fara í massífan vatnsútflutning til Evrópu í gámavís.
Við eigum margt sem Evrópa vill og við ættum að nýta okkur það sem útflutningsvöru en ekki færa ESB það á silfurfati bara vegna þess að ríkistjórnin okkar er með minnimáttarkennd gagnvart "vinaþjóðunum" í "samfélagi þjóðanna".